Telma bloggar

Smælaðu framan í heiminn og þá mun heimurinn smæla framan í þig:)

08.09.2008 17:15:55 / telma

BA- próf í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði



Nýútskrifuð


Endalaus hamingja:)

Jamm loksins komin gráða í höfn. Æðislegur dagur í alla staði, frábær mæting í veisluna og æðislega vel heppnuð veisla.

Takk allir fyrir komuna og gjafirnar, er orðin ríkari af bæði minningum og gjöfum:)


Kveðja,

Telma

» 30 hafa sagt sína skoðun

07.08.2008 21:04:24 / telma

Gleði gleði og endalaus gleði

BA-ritgerðin búin og útskrift 6. sept.

Endalaus hamingja.....:):):):):)

Telma súper glaða

» 21 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 17:53:43 / telma

Sumarið rúmlega hálfnað...

og búið að vera frábært veður... þangað til núna...

Tvær vikur eftir af sumarfríinu og dágskráin er eftirfarandi:

Er að verða búin með BA-ritgerðina, gleði, gleði þegar því öllu er lokið:) Útskrift 6. september:)

Tinna systir er að koma í heimsókn á miðvikudaginn og svo er það út að borða á Tapas og Damian Rice tónleikar, smá spenna að byggjast upp á heimilinu, held að Eyþór haldi að hann verði beðin um að stökkva upp  á svið. Hann er allavega búin að vera að spila Damian Rice lög á gítarinn daginn út og daginn inn í viku;)

Er á leiðinni á Mærudaga á Húsavík á föstudaginn, gistum hjá Dönu systur og Andar í nýju íbúðinni. Hef heyrt að það sé að verða rosa flott hjá þeim og hlakka til að sjá :)

Förum síðan til Múttu, Tinnu og kettlinganna á mánudaginn. Verður án efa kósí.

Óráðið hvað verður gert um versló en býst við rólegri útilegu, skipulagning í vinnslu:)

Úff nenni ekki að blogga :)

Telma


» 23 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 21:04:47 / telma

Verður maður ekki að fara að plana sumarið...?

Úúú alveg að koma sumar. Fór í Ikea og fjárfesti í voða sætu og krúttlegu borði, tveimur stólum og hvítum pullum. Allt heila klabbið fór út á svalir, æðislega sumarlegt. Mín er búin að pína sig tvisvar (jamm pína þar sem það er alls ekki orðið nógu hlýtt) til að sitja úti og lesa blaðið. Er að hita upp fyrir sumarið þar sem ég ætla að vakna snemma og fara út á svalir og lesa blaðið í 20 stiga hita:)

Annars er maður farin að reyna að plana hvað eigi að gera í sumar.
Þetta er búið að ákveða:

*Fara hringin í kringum landið eins og alvöru túristi.

*Skrifa eitt stykki BA-ritgerð sem er komin bara nokkuð vel á veg.

*Fara á Mærudaga á Húsavík helgina fyrir Versló.

*Mála svalirnar

*Mála afganginn af íbúðinni.

*Fara í fyrsta alvöru sumarfríið, ætla að reyna að halda mig frá vinnunni allann Júlí, sjáum til hvernig það gengur:)

Annars á bara að hafa það ógeðslega gott, sitja út í sólinni, rölta niður á Austurvöll eftir vinnu og fá sér öl, fara út að borða, fara í útilegur og vera í góðra vina hópi fram á bjarta nótt:)
Ummm elska sumarið

Telma


» 32 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 20:15:57 / telma

Hvað er betra en ...

að koma heim úr vinnunu og karlinn er búin að þrífa og bjóða í grillveislu ummmm

http://www.streetcow.com/hamburger.jpg

» 24 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 19:19:32 / telma

Orðin 25 ára...

jamm og það er nú töluverður aldur...:)

Átti æðislegan afmælisdag. Bauð fyrst eldra liðinu í kökur og snarl um dagin, fór síðan út að borða með Tinnu, múttu og Eyþórí á Tapas.. ummm elska Tapas, gæti borðað kengurúna hjá þeim á hverjum degi ummm. Síðan var smá partei um kvöldið.

Er alveg í skýinumum yfir öllum frábæru gjöfunum sem ég fékkk. Takk æðislega allir kiss kiss

Annars eru páskarnir búinir að vera rosa þægilegir hingað til allavega:) Vaknaði í gær alveg viss um að ég þyrfti að fara í vinnuna í dag, mundi síðan allt í einu að ég er ekki að fara í vinnuna fyrr en á þriðjudaginn, alltof ljúft, er að njóta þess í botn:)

Er núna að bíða eftir að Eyþór sé búin í vinnuni, er að spá í að fá mér rauðvínsglas fékk nokkarar í afmælisgjöf hehe, og síðan er stefnan tekin niður í bæ að fá sér eitthvað í gogginn. Ummm

Vil benda öllum á að kikka á myspacið hjá henni Tinnu systur, er að gera æðislegar peysur sem hún er að selja. Var svo heppin að fá eina slíka í amælisgjöf:)

Hér er linkurinn: Motif Design

Kveðja,

Telma

» 25 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 21:56:32 / telma

Já sumir eru ekki eins og fólk er flest heheh

Jamm svo ég segi nú ekki minna, er að vísu komið lögbann á mig hvað það varðar að hlægja að þessari sögu heheh

Við skötuhjúin fórum í fertugs afmæli hjá henni Guðnýju konu frænda hans Eyþórs á föstudaginn (flókið?) Þar var vel boði bæði af mat og víni og bara rosa fjör í alla staði:)
Svo mikið fjör að um eitt leytið fékk ég far heim með frænda hans Eyþórs, sumur voru of kurteisir til að afþakka vín :haha:

Allavega mín haskaði sér bara í rúmið og var farin að hrjóta áður en hún var komin með hausinn á koddann...

Þegar Eyþór greyið ætlaði síðan að fara heim að lúra sér, vildi svo vel til að ég hafði tekið lyklanna hans um kvöldið, og hringdi dyrasímanum svaf mín bara eins og alvöru prinsessum sæmir....úps Greyið reyndi að hringja (en ég er svo kurteis að ég hafði sett símann á silent yfir afmælisræðunum) og ýta á dyrasíman á vixl en ekkert gerðist. Greyið var víst orðin úrkula vona og kalinn á þremur tám þegar hann fyrir mistök ýtti á dyrabjölluna hjá nágrönnunum... klukkan hálf fjögur um nótt...
Nágranna greyin töltu fram og opnuðu fyrir dreng greyinu sem komst loksins inn úr kuldanum. Nágrannarnir fóru síðan að spá í hvað hann væri að gera þarna úti og hvort hann kæmist ekki inn (líklega búin að finna það út að ég væri búin að loka hann úti heheh). Eyþór segir þeim frá óförum sínum og segist bara ætla að hringa sig saman og fá sér blund fyrir framan hurðina hjá okkur!!!! Nágranna greyin bjóða honum þá gistingu, alveg örugglega frekar fyrir kurteisissakir en það að þau hafi viljað láta hann gista á sófanum hjá sér.
Í staðin fyrir að segja nei eins og venjulegt fólk, hringja og fá gistingu hjá vinum sínum máske, verður drengurinn bara rosa glaður og þiggur boðið með þökkum. Ráfar inn til nágrannanna og drepst á sófanum þeirra!!!

þið getið rétt ýmindað ykkur að við erum aðeins búin að hlægja að þessu. Eigum by the way mjög fína nágranna sem tóku þessu bara vel, búin að hlægja með okkur.

Besta er síðan kannski að þegar greyið drengurinn bankar til að vekja mig klukkan 8 um morguninn er ég bara með kjaft: Hvar í anskotanum hann væri búin að vera hvort að hann vissi hvað klukkan væri.. bahahha greyið.

Eyþór er víst ennþá víst smá fúll útaf þessu, er samt alveg að læra að hlægja að þessu. Held að hann sé merst fúll yfir því að ef dæmið hefði snúið öfugt, hann sofið meðan ég hamaðist á dyrasímanum, hefði ég líklega brotið upp hurðina og myrt hann:):):) Síðan hlæ ég bara af honum heheh

Telma svefnburka

» 20 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 19:12:16 / telma

Er ég búin að vera löt að blogga...

neibb ekki svo. Ástæðurnar liggja annarstaðar þar sem blog.central.is ákvað að breyta eitthvað til þannig að ég, sem hef ekki pláss í mínum litla haus fyrir fleiri lykilorð, var búin að vista lykilorðið í tölvunni en það datt út við breytingar....piff ekki nógu gott. Ég var síðan ekki að drattast til að fá nýtt lykilorð fyrr en í dag. Jamm góð saga ekki satt hehe

Búið að gerast síðan síðast:
  • *Ég pantaði mér bók á amazon.com fyrir ritgerðina svo nú hlýtur eitthvað að fara að gerast er það ekki...?
  • *Ég og Karen tókum stelpudag með búðarrápi, mat, slúðri, fylleríi og öllu tilheyrandi.
  • *Allt að gerast í vinnuni og nóg að gera, búið að bæta við í deildina mína og allt.
  • *Hangs og sjónvarpsgláp þar sem það er búið að vera svo dimmt, en nú er að birta til:d
  • Líklega eitthvað fleira sem gullfiskaminnið er ekki að koma með núna....

Það sem er á döfinni:

  • *Fertugsafmæli á föstudaginn
  • *Ferming hjá Heiðdísi á sunnudaginn, held að miða við planleggingar hljóti þetta að verða feiknar partý:lol:er það ekki darling?
  • *Leikhús með múttu og Tinnu á Kommúnuna, búin að heyra góða hluti um þessa rullu
  • * Konukvöld í vinnuni, mexikóskur, vín og skemmtilegheit.
  • *STÓR afmæli á föstudaginn, Telma 25 ára er bara að verða fullorðin  svoltið skrítið að eiga afmæli á föstudaginn langa, svona ef ég væri rosa trúuð allavega...
  • *Fer til Akureyrar í fermingu yngstu systur, boðskortið var svo pæjulega bleikt að það er við góðum hlutum að búast:)

Þar hafið  þið það :)

Telma ellismellur



» 22 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 21:04:58 / telma

...

Jamm allt að gerast...

Við skötuhjúin ákváðum að Pólóinn litli væri ekki alveg að sinna okkar þörfum þar sem við komumst bara alls ekki inn í hann alla morgna sem kemur sér nú bara alls ekki vel...:(

Skelltum okkur á einn Honda CRV sem er svona líka fínn og sætur, svoltið annað lífa að vera á honum á nöglum í veðrinu undanfarið heldur en Pollanum á sumartúttunum... Set inn myndir af gripnum ef að ég hunskast einhvertíma til að taka myndir, semsagt líklega aldrei...

 Jamm svo er stelpan bara búin að fá stöðuhækkun í vinnunni, orðin verkefnastjóri einstaklingssviðs. Svakalega spennandi og áhugavert þannig nóg fyrir höndum. Erum að ráða fleiri inn í mína deild þannig fullt af nýju og fersku fólki í bland við reynsluboltana sem fyrir eru:)

 Svo er það bara BA- ritgerðarskrifin sem eru að fara að byrja aftur. Byrjaði nú einhvertíma í sumar í stresskasti að reyna að skrifa BA- ritgerð, flytja og byrja í nýrri vinnu en maður var nú fljótur að átta sig á að það var ekki að ganga upp8| En nú verður þráðurinn tekinn upp að nýju, var að ná í bækur og svo er það bara að spýta í lófana og klára þetta af...

Tryggingarskólinn er að taka smá tíma og ekki laust við að ég vildi vera laust við hann stundum, ekki það að ég læri ekki fullt, bara að fá alveg nóg:( En þetta reddast, verður búið í apríl jejje

Annars kom Tinninn minn í heimsókn um síðustu helgi, æðislegt að fá hana, ekki laust við sakn stundum... Fórum í svaka partý til Ernu upp í sveit á laugardaginn;) Ekki laust við að það hafi verið langt síðan ég fór í svona "unglingapartý", skemmti mér konunglega, nokkrar svoltið spes uppákomur sem verða ekki endurteknar á veraldarvefnum hehehe

Annars lítið á döfinni þennan mánuð, næsti mánuður verður hinsvegar nokkuð spes, þrjár fermingar og svo er minns að verða 25 ára. Jamm heyrðuð rétt 25 ára eða = gömul... það fannst mér allavega fyrir nokkrum árum... hehe Já og ekki nóg með það þá á ég afmæli á föstudaginn langa... eins gott að ég er ekki sérstaklega trúuð, tæki þetta annars líklega nærri mér... Allavega takið dagin frá:)

Þangað til næst.

 

Telma


» 35 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 20:05:53 / telma

Annáll 2007

Janúar

 
  • Byrjaði eins og venjulega snemma á Bifröstinni minni, skrópaði 2 jan. þar sem ég var svo dugleg að mæta í fyrra og fékk engan heiður fyrir.
  • Djamm og skrall á Bifröstinni.

Febrúar

  • Við nördin (Ég, Eyþór, Bragi og Bryndís) fórum út að borða á Einar Ben og síðan að horfa á forkeppnina í Eurovison á Íslandi og þá meina ég ekki í sjónvarpinu heldur í Loftkastalanum hehehe

Mars

  • Fór í skíðaferð til Akureyrar með vel völdu fólkiJ Komst að því að Sjallinn er ekki lengur staðurinn minn... langt í frá piff
  • Síðustu alvöru prófin á Bifröst gleði gleði

Apríl

  • MISSÓ það leiðinlegasta en jafnframt síðasta verkefnið á Bifröst. Saknaði Barða og okkar kæruleysislega vinnuferlis einum of mikiðJ

Maí

  • Bragi og Bryndís komu suprice frá Kína, hef ekki oft orðið jafn hissa skal ég segja ykkur....
  • Fékk vinnuna mína hjá Verði.
  • Var ennþá haldin þeim ranghugmyndum að ég gæti byrjaði í nýrri vinnu, flutt frá Bifröst og skrifað eitt stykki BA-ritgerð á tveimur mánuðum....
  • Grill grill grill og gott veður

Júní

  • Flyt frá Bifröstinni minni... söknuður og hamingja í bland.
  • Kaupum æðislegu íbúðina okkar á Reynimelnum, klárlega bestu kaup sem ég og Eyþór höfum gertJ
  • Byrja í nýju vinnunni minni hjá Verði.
  • Komst að því að BA-ritgerð verður ekki skrifuð í besta veðri sem komið hefur í mörg ár með vinnu og flutningum...
  • Alltof gott veður, gaf Eyþór mínum keppnis grillið sitt

Júlí

  • Ég og Eyþór búin að vera saman í tvö ár....
  • Ekkert nema gott verður,grill og þægindi (engin BA-ritgerð á bakinu fyrr en seinna skiljiði..)
  • Bryndís og Bragi komu heim

Ágúst

  • Versló á Flúðum sem var nú svona allt í lagiJ
  • Fórum á reunion hjá Eyþóri, svona allt í lagi;)
  • Bústaðarferð ein af alltof fáum í sumar...
  • Innflutningspartýið okkar fræga, alltof gaman, æði hvað margir komu og fullt af frábærum uppátækjum og bulli heheh
  • Ég tók eldhúsið okkar í gegn, Eyþór hjálpaði bara smáJ
  • Byrjaði í Tryggingarskóla HR

September

  • Fór á vinnuhelgi upp á Bifröst til að klára síðasta áfangann minn
  • Þeir allra hörðustu útskrifuðust úr HHS, fyrsti útskriftaráfanginn.

Október

  • Kláraði síðasta áfangann minn á Bifröst með glæsibrag.
  • Fórum í árshátíðarferð til Svíþjóðar með Verði.
  • Málaði stofuna mína
  • Kláraði fyrsta hlutann af tryggingarskólanum.

Nóvember

  • Kláraði að mála stofuna mína og afrekaði að veggfóðra líka.
  • Kallinn varð 24 ára, náði mér loksins í aldriJ

Desember

  • Brjálað að gera í vinnunni og nóg að skeð
  • Fyrstu jólin í íbúðinni okkar með múttu minni og Tinnu, algert æðiJ
  • Fullt af mat, fullt af gjöfum og kósíheit.

 Jamm hér er svona þetta helsta... man allavega ekki meira, auðvita fullt af öðrum skemmtilegum mómentum:)

Blogga betur seinna, fullt af merkilegum fréttum, var að fá stöðuhækkun í vinnuni og vorum að kaupa eitt stykki bíl8| Jamm hlutirnir gerast stundum svolítið hratt... nánar síðar

Telma


» 25 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 11:10:43 / telma

Gleðileg jól:)

Jamm gleðileg jól, allir þeir sem ég sendi ekki jólakort og hinir líka:)

 Úff hvað það var næs að vera í jólafríi, get bara ekki lýst þessu umm. Er að vinna núna í tvo daga og svo er bara aftur frí ummm. Kallinn er líka aldrei þessu vant búinn að vera í fríi líka, sem kemur aldrei fyrir, sem er auðvita ennþá notalegra.

Fékk fullt, fullt af gjöfum, er eiginlega næst að dagskrá að kaupa sér borðstofu skáp til að koma öllum þessum fínu gjöfum fyrir. Takk æðislega allir sem splæstu einhverju á mig þessi jól kiss kiss:*

Maturinn var náttúrulega fysta flokks, ekki við öðru að búast af mínum heittelskaða, og svo hefur átið bara haldið áfram. Tvö jólaboð á jóladag, eitt með ömmu og hitt hjá tengdó. Svo var jólaboð hjá Ósk á annan í jólum. Nóg að borða og mikið gaman:)

Svo eru bara áramótin næst á dagskrá, það verður bara kósí matarboð heima, að vísu gæti nú verið að fleiri myndu bjóða sér í það, hefur víst spurst út hvað kallinn eldar helv.. góðan mat heheh Síðan verður eitthvað get together, læt sko ekki plata mig niður í bæ eins og hérna um árið. Virtist aðeins vera fólk þarna sem hafði ekki í önnur hús að vernda a.k.a. var ekki boðið í neitt partý...hvað segir það um okkur sem vorum að lufsast niður í bæ hehe

Ætla síðan að fara að hjálpa henni Borgnýju minni að mála nýja slottið sitt í kveld, það verður pizza í annari og pensill í hinni. Verð nú að leyfa öðrum að njóta minnar miklu snilli við að mála:)

 

Kveðja,

 Telma


» 36 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 17:30:58 / telma

Og ekki enn komnar fyrir og eftir myndir...

.. því kallinn er ekki ennþá búinn að koma þeim inn. Og nei það er ekki því ég kann ekki að láta þær inn heldur því að USB tengið á tölvunni minni er eitthvað bilað og vill ekki taka við myndum..jamm veit ekki meir

En nóg um það. Er búin að skreyta hátt og lágt, eða allavega pínu. Komið aðventuljós í einn gluggan og stjörnusería í annan. Setti síðan upp rosa fína seríu á svalirnar, svaka dugleg.

Ætlaði nú samt nærri því að tapa gleðinni við að setja upp seríuna. Ólíkt venjulega var ég svaka þolimóð að setja upp seríuna, vafði henni meistaralega utan um handriðið og allt fullkomið. Síðan þegar ég er búin að setja seríuna í samband fatta ég að ég þyrfti eiginlega að taka seríuna úr sambandi við straumbreytinn og færa snúruna... Til að gera langa sögu stutta þá bara slitnaði ansk.. snúran og allt ónýtt!!!! Jamm gleðin var ekki mikil skal ég segja ykkur. Tinna systir var svo yndisleg að fara og skila henni fyrir mig og kaupa nýja... síðan var bara taka tvö og ný sería komin upp rosa fíntí fíntí:)

Annars er lítið að frétta, bara að njóta þessa að hafa ekki brjálað að gera í des í fyrsta skipti síðan í barnaskóla úff svo næs... engin próf og ekki neitt. Meira að segja frí í  tryggingarskólanum í des sem er æði:) Stefnan tekin á að hafa það rosa gott og rólegt í desember.

Jólastemmingarkveðja

 Telma


» 28 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 12:59:44 / telma

Veggfóðrarinn mikli frá Kasmír...

já ég var fyrir nokkrum mánuðum búin að festa kaup á svona sérdeilis fallegu veggfóðri... eina vandamálið var að nú hafði ég aldrei veggfóðrað en þetta leit nú út fyrir að vera nógu auðvelt í innlit/ útlit.

 Það fyllti mig nú ekki beint sjálfstrausti þegar maðurinn í Slippfélaginu og strákurinn í Litalandi spurði mig báðir  hvort ég hefði ekki örugglega veggfóðrað áður... Nei ekki beint, en ég væri nú tiltölulega laghent. Já var það svöruðu þeir, með vandlætingarsvip á andlitinu, ég mætti nú samt búast við því að þetta yrði bölvað klúður. Ég myndi líklega skemma allt veggfóðrið, tapa geðheilsunni og úthúða öðrum fjölskyldumeðlinum sem kynnu að verða á vegi mínum á meðan á veggfóðrun stæði...

Úbbs var ég kannski búin að taka af mér verkefni sem ég myndi ekki ráða við... En ég ákvað að láta nú ekki hræða mig, fór full sjálfstrausts heim og setti mig í zen stellingar. Öll óþolinmæði var látin fara lönd og leið, jamm erfitt í mínu tilviki, og innri ró einkenndi hugarástandið.

 Ég byrjaði á að mæla snýða og máta, síðan hrærði ég mitt eigið lím (ekki laust við að tilfinningin um að hafa tekið of mikið að sér hafi látið á sér kræla þá) og skellti síðan fyrsta renningi á veggin... viti menn það tókst, og leit alls ekki svo illa út. Þolimæðiskastið hélt áfram, ég rúllaði og strauk veggfóðrið þangað til að búið var að útrýma hverri einustu loftbólu og misfellu. Næsta stykki, allt tilbúið, komið á vegginn og svo riiippp jamm rifnaði veggfóðrið. Ekki laust fyrir að smá innri ólga hafi farið af stað eitt lítið FOKK var látið flakka en í anda hugarrónnar var haldið áfram í sama zen ástandi. Þrír renningar komnir upp og bara eftir að skera umfram veggfóður af síðasta renningi, stóð aðeins fram af veggnum. Úff ég sem get ekki einu sinni klippt innpökkunarpappír rétt, hvað hef ég komið mér út í. Tilfinning mín um vanmátt gangvart verkefninu fór að læðast að mér aftur. En nei gengur ekki, bara ráðast í þetta, vesta sem gerist er að ég þarf að mála yfir allt heila klabbið. Byrja að skera, úbbs smá mikið, reddast samt.

Þið getið ýmindað ykkur hversu stoltur veggfóðrarinn mikli var þegar hann stóð nokkrum mínutum seinna fyrir framan, án alls monts, nær fullkomið verk sitt. Búin að læra að láta ekki einvhrerja "fagmenn" draga úr mér. Ég get sko alveg gert þetta sjálf.

Koma fyrir og eftir myndir fljótlega;)

 

Telma stoltur veggfóðrari


» 29 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 19:01:33 / telma

Vetur...

og ég er bara komin í jólaskap... Ekki vanalegt með mig. Líkleg ástæða er að þetta eru fyrstu jólin í eigin húsnæði.

Ég og Tinna keyptum skraut á jólatréð á sunnudaginn, verður mega flott, ætla að prófa að hafa lifandi lítið krúttlegt jólatré úú hlakka til:)

 Á eftir að kaupa seríur á svalirnar og í gluggana, getur maður ekki alveg farið að setja þannig upp um miðjan nóv. án þess að vera talin jólabrjálaður...?

 Byrjaði að mála stofuna í gær, gera allt fínt fyrir jólin sjáið þið til... er samt í einhverju letikasti núna, ekki alveg að nenna að halda áfram. Kannski maður nái að virkja kallinn með sér í málningardjobbið.

Ætla að fara að gera eitthvað af viti,

 

Telma sem er komin í jólaskap


» 34 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 20:21:32 / telma

Erum komin heim.. fyrir rúmri viku...

Jamm erum komin heim. Fórum af stað alltof snemma á laugardaginn. Stelpan var þó nokkuð spennt þar sem þeir sem þekkja vel til vita að hún hefur nú ekki oft farið út fyrir landsteinanna. Nældi mér auðvita í gluggasætið og gapti út um gluggann til að sjá allt sem fyrir augu bar. Held að Eyþór hafi fengið smá á tilfinninguna að hann væri að ferðast með barni þegar ég í einlægni minni fór að velta fyrir mér hvort ég sæi nokkuð Færeyjar á leiðinni... Hann þurfti þó að játa sig sigraðan þegar ég gólaði upp fyrir mig nokkru síðar að þarna væru þær og viti menn þarna voru þær. Heppin J

 

En jamm stelpan fékk að upplifa fullt af nýjum hlutum í landi Svíanna til dæmis:

  • Fékk ég að skoða hálendi Svíþjóðar og Noregs úr lofti, vottaði fyrir smá hálsríg þegar fluginu var lokið.
  • Fór ég í fyrsta skipti í svona alvöru flugstöð, voða stór.
  • Fór ég í leigubíl með bílstjóra sem var líklega ekki með bílpróf og talaði verri sænsku en ég.
  • Komst ég að því að leigubílstjórar rata alls ekki neitt í Svíþjóð og tala ekki sænsku.
  • Fór ég í System bulaget....
  • Komst að því að í H&M er maður er sendur inní mátunarklefann aftur til þess að ná í herðatrén sem maður skildi þar eftir.. þó að maður sé með fullt fang af fötum sem maður er að fara að kaupa.
  • Maður fær ekki að versla eftir lokun í H&M í Svíþjóð heldur er maður rekinn út hehe
  • Fékk að sjá yfirmenn mína dansa ballett í nælonsokkabuxum og tjullpilsi
  • Sá allt það helsta í Stokkhólmi höllina og svonna
  • Smakkaði elg
  • Fékk mest djúsí morgunmat sem ég hef fengið suss
  • Komst að því að Svíar skúra göngugötuna sína á nóttunni
  • Fór í fyrsta skipti í lest, voða gaman J
 

Það voru síðan voða þreyttir ferðalangar sem komu heim um miðjan mánudag...

 

Kveðja

 

Telma


» 26 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Dagsetning
10. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  20  Alls: 75970
Klukkan